|
Fréttir
2007-09-18

Ísafold
f.2006
Fleiri afkvæmi
Rauða hryssan er Ísafold frá Dalvík.
Myndir af henni eru undir Afkvæmi
2007-09-11

Drengur f. 2006
Sperrtur Drengur
Fengum myndir af Dagssyninum Dreng frá Dalvík.
Myndir af honum eru undir Afkvæmi
2007-09-05

Á fallegum haustdegi

Snemma beygist krókurinn
Heimsókn hjá Degi
Í dag komu þær Yvonne og Mia frá Svíþjóð til
að heilsa upp á Dag.
Á þessum fallega haustdegi lagði Stebbi á klárinn og Embla Lind, 6 mánaða notaði
tækifærið og skellti sér á bak.
2007-09-03

Skuggi f. 2007
Kveðja frá Sauðárkróki
Þessi flotti Dagssonur fæddist í sumar og
það eru komnar myndir af honum undir
Afkvæmi.
Endilega sendið myndir af Dagsafkvæmum á
vefstjóra.
2007-08-20

Dagsdóttir f. 2007
Dagur fyljar vel
Sónarskoðað var frá Degi í dag. 27 hryssur voru hjá honum og 22 eru
staðfest fylfullar. 2 voru mjög trúlega fengnar og aðeins 3 voru geldar.
2007-08-18

Bikarmótsmeistarar 2007
Dagur sigraði fimmganginn
Dagur sigraði fimmganginn á Bikarmót
Norðurlands með 7,55 í einkunn. Þetta er í fjórða skiptið sem félagarnir
Stefán & Dagur sigra fimmgangsgreinina
á Bikarmóti. Auk þess tóku þeir þátt í gæðingaskeiði (7,25) og tölti
(6,20) Til hamingju!
2007-08-18

Bræður á Bikarmót
Baldurssynirnir Dagur og Svanur Baldurs kepptu á
Bikarmót Norðurlands
sem haldið var á Dalvík um helgina
og þeir stóðu sér með
mikilli prýði.
Ellen Ýr og Svanur Baldurs voru í öðru sæti í fjórgangi unglinga með
einkunnina 6,53.
2007-08-15

Vefurinn opnaður
|